Sunday, September 11, 2011

París og fyrstu dagarnir :d

Jæja ég er búinn eða vera i frakklandi i viku og það er alveg rosalega gaman J

Á föstudeginum áttum við flug kl 8 (sem var btw seinkað um 2 tíma L )og ég og mamma og gunnhildur fórum uppá fliugvoll að kveðjast.  Maður fékk bara kökk í hálsinn við að seigja bæ og vita að maður sjá þær ekki fyrr en eftir ár en jæja.....
Svo vorum við skiptinemarnir í leifstöð  og við sátum á einhverjum stað og spjölluðum sem var bara gaman ;D
Síðan hófst 2 tíma og 50 mínótna flug sem var ágætt fyrir utan ískur í dekkjunum Þá varð ég mjög hrædd við hélt að vélinn væri að springa hah.
Þegar við loksins komum til parísar og stigum útut vélinni blöskraði við mér brjálaður hiti. Ég get svo svarið það að ég hefði bara fundið liktina af hitanum :D
En já á flugvellinum i parís biðum við i uþb  klukkutíma eftir töskonum okkar og svo biðum við í 1 klukkutíma í viðbót eftir fleiri afs krökkum sem voru víst tíndir.
 Loks fórum við öll AFS krakkarnir í rútu á hostelið okkar  en þar þurftum við nú að bíða í 1 tíma í viðbót eftir herbergjum sem var ekkert sérstaklega gaman. Ég lennti í herbergi með sædísi frá íslandi, rebeccu  og lauru frá usa.  Við fórum svo í kvöldmat í kaffeteríunni sem var bara einn vaersti matur sem eg hef smakkað  haha en það var einhver osta pizza og ég bara var hrædd um að ég væri að fara borða vondann mat næsta árið ahha ;D Síðan fórum við bara að sofa útaf allir voru svo þreittir eftir ervið ferðalög.

 Daginn eftir fórum við svo í morgunmat  og svo fórum við í rútuferð um parís sem var bara rosa gaman að sjá alla flottu staðina eins og effel turnin og margt fleira :D svo fengum við að fara ut og taka myndir með  effel turninum . Eftir 2 tíma rútuferð var haldið aftur á hostelið  í hádegismat og þar fórum við í hópa og kynntumst nýju fólki  síðan kom bara kvoldmatur aftur, og aftur var ekkkert spes matur ;/. Um kvoldið var svo welcome meeting sem var bara aðalega verið að láta alla venjast að kyssa alla á kinnarnar  og það var líka verið að tala um morgunnin hvernig hann færi framm og svona. Síðan áttum við bara að fara sofa en ég og rebecca spjölluðum nú samt saman í 2 tíma lengur um lífið og tilveruna.

Daginn eftir vöknuðum við kl 6 og byrjuðum að fara í sturtu og gera okkur klárar utaf því að við vorum að fara í 6 tíma rútuferð kl 8;30 til collin du rhone (hérðasins okkar)  en því var nú seinnkað um klukkutíma þannig að við fórum bara í morgunnmat og cilluðum þangað til :d
Svo hófst þessi blessaða ferð i rútunni og ég sat bara með íslendingunum og naut þess að tala íslensku aðeins lengur. Svo stoppuðum við eftir 3 tíma og fengum okkur eithvað skemmtó i einhverri búð sem var mjög góð búð og ég hefði geta keipt hana alla  útaf því að það var allt í svo flottum pakkningum :D. !!!!!
En svo loks þegar við komum til staðsins sem að fjölskyldurnar áttu að vera var sagt okkur að  labba kílómeter upp einhverja brekku sem var ekki gaman ....
Svo var bara spenningurinn í hámarki og manni vissi ekki hvernig manni átti að líða en það var svo bara alltílagi og ég og fjölskyldan mín fórum svo bara i einhverja veislu fyrir barn bróðir mömmu minnar og þar var maður bara kysstur hægri vinstir haha.  Þegar veislan var búinn fór ég bara heim með mömmu og sys :D eheh og tók uppúr töskunum og gerði herbergið mitt flott og svo gaf ég þeim gjafirnar sem ég kom með og þær elskuðu allt það voru sáttar með ponnukökupönnu   en eftir  það fór ég nú bara uppí rúmm útaf ég var alltof þreytt  :D. 






Ég segi ykkur bara smá frá vikunni sem leið dag eftir dag :D

Mánudagur
Ég vaknaði og var ein heima  með laurine og ég fékk mér morgunnmat og fór í sturtu og horfði smá útumm gluggann heh (flott útsíni !!)  . klukkan 2 kom isabelle heim og við fórum til Annonay að kaupa pennaveski og dagbók sem ég glleimdi að koma með :O ! og svo fórum við bara heim.Þegar við vorum komnar heim þá var hringt heim og spurt afhverju ég hafi ekki komið í skólann og þá vissi ekki isabelle að ég væri i seconde sem byrjaði á mánudeginum en hinir í skólannum byrjuðu í skólanum á þrið.. en það var alltígóðu :D..... síðan fór ég bara að sofa ég var svo þreitt

Þriðjudagur
Ég vaknaði kl 9 og ég og isabelle keirðum til turnon sem skólinn minn er og  svo var komið að því að fara í fyrsta tímann minn sem var byrjaður þannig að þegar ég kom inn var bara starað á mann sem var pínu óþæggilegt hehe en það fór  og þetta var enska þannig að ég var ánægð að ég mundi skilja e’ð i skolanum en nei.. nei  þá var enskan á frönsku sem eg var ekki að digga en í enda tímans átti eg að kinna mig og ég sagði að ég væri frá íslandi og allir bara :O...
Og það var spurt bara  áttiru heima hjá eldfjallinu ehhe og allskonar :D en svo eftir 3 tíma kom einhver kona og sagði að skólastjórinn vildi tala við mig og ég sagði honum að ég fílaði ekki auka íþróttir þannig að hann lét mig skipta um bekk og auðvitað gerðist það aftur að það var starað á mann ahha en það er bara gamann og ég fíla þennann bekk alveg vel :D en eftir skólann kom babette að ná í mig (konan sem ég mun gista hjá á mán þrið og fimmt ) og hun síndi mér leiðinna heim og ég á víst að labba í þetta ár allltaf í skólann 20 mín leið :O. En ég fór nú bara að sofa snemma um kvoldið .

Miðvikudagur
Skóladagur  2 og hann er bara frá 8 til 12 alltaf  og síðan fer eg til arlebosc eftir þann dag :D en það gerðist ekkert spes nema þegar ég vaknaði þá gaf babette mér jógurt með sultu útí  já  SULTU  :O mér fannst það ekki gott :D hah. En svo þegar ég ætlaði að labba fyrsta skiptið í skólann þá labbaði ég i vitlausa átt og villtist og var kominn lengst frá skólanum en sem betur fer var ég með síma og ég reddaði mér bara og hringdi og lét ná í mig :D

Fimmtudagur
Ég vaknaði kl 5:30  til að fara í rútuna kl 6:30 :O og ég er sko ennþá á íslenskum tíma þannig að þetta var not cool L
En annars var dagurinn fínn fór í mötuneitið i skólannum sem var bara finnt ekkiert vondur matur þar á ferð :D

Föstudagur
Ég vaknaði fór í skólann og það var bara rosa gamann en síðan kom að því að fara í íþróttir sem ég var ekkert spennt fyrir utaf ég hata íþróttir en  þegar tíminn byrjaði þá var kallað upp alla nema mig sem var alltaf gert alla vikunna fór eftir hvern einasta tíma til að láta vita af mér en jam krakkarnir sogðu honum að ég skildi ekki fronsku og e’ð og ég sat eiginlega bara hjá og var með veiku krökkunum ahha  var rosa feginn utaf krakkarnir voru BARA að hlaupa í 2 klukkutíma og enginn sturta eftirá !!!!!!!!!!   en svo fór eg bara til Arlebosc eftis skólan og  gerði lítið meira þann dag...

Helginn

Ég er bara buinn að ver cilla um helgina en ég fór reindar á mótorkroosss mót í gær sem var mjog gaman að hrofa á  og svo í dag fór ég í bíó með isabelle og vinkonu hennar á einhverja franska vín e’ð mynd sem var rosa spes en skemmtileg þótt ég skildi nú varla ekkert í henni :D ahha 

Sorry hvað þetta er langt blogg ... en hef lítið meira að segja þannig að untill next time :d


Íris kamilla :D

5 comments:

  1. Ekkert að afsaka með hvað bloggið er langt, mig langar að vita allt ;) hehe..

    En ha? Misstir þú þá af fyrsta deginum í skólanum?

    Skemmtilegt blogg.

    -Gunnhildur Jódís

    ReplyDelete
  2. um fyrsti dagurinn svona kinningar eða þannig átti að vera þarna :D

    ReplyDelete
  3. Góður Pálmi :)

    Gott blogg :)

    segðu okkur meira frá húsinu sem þú býrð í, ertu með herbergi þá á tveim stöðum?

    kveðja,
    Sigrún

    ReplyDelete
  4. Þú munt skilja frösnku myndirnar eftir smá stund;)
    En skemmtu þér geggjað vel úti;)

    ReplyDelete